Miðvikudagur, 28. október 2009
Big Horn Sheep
Samkvæmt fréttinni eru þær búnar að ganga sjálfala í meira en hálfa öld, búnar að aðlaga sig að aðstæðum orðnar háfættari en íslenska sauðkindin og orðin sér stofn. Þetta þætti nú ansi merkilegt annarsstaðar en á Íslandi þar sem þeim er líkt nánast við róna sem þarf að slá af og kallaðar útigangskindur. En þetta er miklu merkilegra en það. Það hefði verið nær af náttúruverndarsamtökum að fylgjast með þeim og kanna líferni þeirra og þróun í íslenskri náttúru.
Ég var nýlega í Ameríku í Wyoming og þar er til sérstakur stofn villtra fjallakinda sem eru kallaðar Big Horn Sheep en eins og þessar þá eru þær háfættari en venjulegar kindur. Hrútarnir í Klettafjöllum geta orðið allt að 500 eða 230kg. pundum og hornin allt að 14kg.
Er ég var á leið í Yellowstone þjóðgarðinn rakst ég á nokkrar og er myndin hér að neðan frá því.
|
Nítján kindur heimtar af Tálkna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |













Athugasemdir
Ég færði færslu á aðra frétt - en þá datt niður aths hjá þér. Afsakaðu. KP
Kristinn Pétursson, 31.10.2009 kl. 17:32
Ekkert mál.
Rafn Haraldur Sigurðsson, 1.11.2009 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.