Þurfti hann nú endilega að troða sér á milli okkar.

Síðast í gær er ég gáði að þá var eitt laust sæti í vélinni en það var á milli mín og konunnar. Í morgun er ég gáði var búið að fylla í það.Devil
mbl.is Steingrímur fer til Denver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisvænn málmur

Ekki bara það að 75% álsins sé endurnýtt en einnig er álið orkusparandi vegna léttleika síns og orkuleiðni. En eins og alþjóð veit þá er álið notað mikið í allskonar bílahluti sem gera það að bíllinn verður léttari og fyrir vikið eyðir bíllinn minna en annars og minkar útblástur óæskilegra lofttegunda. Það er notað í potta og pönnur sem gera það að suðan kemur mikið fyrr upp en ella og er því orkusparandi þannig. Það er notað í rafmagnskapla, öldósir sem lenda að mestu leyti aftur í endurvinnslu. Fyrir ferðaiðnaðinn hefur álið skipt sköpum,  þar sem að flugið byggir mest alla sína tilveru á álframleiðslu.

 

önnur grein um umhverfisvænt ál.

Álið sem étur upp mengunar mistrið.

 


mbl.is 75% allrar álframleiðslu endurunnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullfoss með glæstum brag

Ég var þarna í gær og það er alveg rétt að það er búið að hengja bandspotta yfir stíginn með litlu skilti sem enginn tekur mark á. Allavega klofuðu heilu  túrista hóparnir yfir spottann og fóru niður flughálann göngustíginn. Það er ekki nokkur gæsla á svæðinu. Ég held að eina leiðin sé að taka gjald af túristum sem koma þarna og nota ágóðan til þess að efla  gæslu og setja upp  mannheldar varnargirðingar. Ég held að það sé bara tímaspursmál að einhver fari sér að voða þarna. En Gullfoss var glæsilegur  klæddur í vetrarbúning.

 

 
 
 
 
 

 


mbl.is Gönguleið lokuð við Gullfoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

120 vindmillur

Ef að það er rétt að vindmillurnar muni ekki framleiða meira en 1 til tvö megavött samtals, þá þarf ansi margar vindmillur til að framleiða þau 270 MW sem að Búrfellsvirkjun framleiðir. Getið þið ýmindað ykkur hvernig landið  muni koma til að lýta út fyrir ofan Búrfellsvirkjun þegar að 270 vindmillur muni skreyta hálendið. Kannski eitthvað svona?

 

60_110_graen_volt.jpg

eða svona

pa050073.jpg

Vindmillulstrúktúr

58_graenn_orkugjafi_1121703.jpg

Ein Búrfellsvirkjun takk

pa050077.jpg

 Til móts við orkuna

122_graen_orka_jar_efnaeldsneyti.jpg

Og svo í restina eitt  gamaldags kolaorkuver

 

130_kolaraforkuver_fyri_utan_casper.jpg

Myndirnar eru frá Wyoming í Bandaríkjunum, en þær tók ég er ég  þegar ég var á ferðalagi þar ekki fyrir alls löngu síðan.


mbl.is Vindmyllur á Íslandi innan árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læst en ekki læst

Munið bara að það er ekki nóg að bregða lásnum eingöngu í gegnum dekkið.  Það er mjög auðvelt að stela reiðhjóli ef lásnum er eingöngu brugðið  í gegnum framhjólið eins og sést á myndinni fyrir neðan.

Eitt handtak og stellið er laust frá framhjólinu.

 


mbl.is Yfirbyggt hjólastæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn með áherslurnar á hreinu!

Sorglegt að sjá hvar áherslur  ríkis og borgarstjórnar sem kenna sig við félagsleg gildi  liggja, en á meðan ríkið dregur saman í styrkjum til sjúkrahúsa og samtaka eins og Blindravinnustofu, en Svandís Svavarsdóttir hefur gert það kunnugt að framlög ríkis og borgar til tónlistarhússins Hörpu nema 960 milljónum á ári meðan framlög til Blindravinnustofunnar hafa lækkað um 35% á undanförnum árum. Og nú stendur til að endurfjármagna Hörpuna upp á 18 milljarða. 

 


mbl.is Blindravinnustofan í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hunda og Hænsna plágan

Það er fátt eins óþolandi eins og þegar maður er að fá sér göngutúr og allt í einu án nokkurs fyrirvara er gelt á mann með þvílíkum látum að maður hrekkur við. Þetta er að verða æ algengara, og ég hef reynt að sussa á kvikindin með þeim árangri að þeir...

Nilfisk

Í gamla daga voru í tísku ryksugur sem hétu Nilfisk og þóttu mjög öflugar og ódrepandi ryksugur sem skyldu ekkert eftir. Seinna er ég fór á námskeið í eldsmíði í gömlu smiðjunni hjá Jósafat Hinrikssyni var svona ryksuga notuð til að blása í glæðurnar....

Tími til að kveðja

Á sama tíma og allt er að gerast í Hörpu, þá sit ég hér heima og horfi á stórkostlega tónleika á stöð 2. American Idol. Þvílíkt show. Ég held að núna í úrslitunum gefi Jackie Evancho sem er fædd 9 apríl árið 2000 og Sara Brightman gefi þeim ekkert eftir....

Imagine

Næsti forseti Bandaríkjanna? Herman Cain er einmitt maður sem hefur notað sér You tube, reyndar til að kynna pizzufyrirtækið sitt. Herman Cain er Republikani og hefur mælst ansi hátt í könnunum undanfarið. Sumir segja að hann tali mál sem alþýðan skilur...

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband